Dönsku meistararnir Rosendahl, Erik Bagger og Menu eru mættir
Valfoss býður upp á danska eðalhönnun frá heimsþekktum fyrirtækjum. Fagurkerar nær og fjær geta glaðst með okkur þar sem nýjasta hönnun hinna þekktu dönsku framleiðenda er komin í hús. Þar má nefna Rosendahl, Erik Bagger, Menu og fleiri. Það sem einkennir hönnun þessa sígildu snillinga er gæði, fágun og notagildi. Valfoss leggur mikla áherslu á að fylgjast með því nýjasta sem er að gerast á markaðnum.
Íslensk hönnun sem gleður augað og gera lífið skemmtilegra
Mikl gróska er í íslensku handverki og hönnun um þessar mundir og við hjá Valfoss erum stolt af því að styðja við þá þróun og fjölga atvinnutækifærum í skapandi greinum. Íslenskir hönnuðir eru þekktir fyrir gæði, kjark og frumlega hönnun og er íslensk hönnun kjörin gjöf til að gleðja þá sem búa nær og fjær. Við aðstoðum þig við val á gjöf sem hentar við hvert tilefni fyrir sig og sjáum innpökkun sé þess óskað.
Komdu þínu fyrirtæki á kortið með aðstoð vandaðra auglýsingavara
Viltu ná athygli? Við hjá Valfoss byggjum á margra ára reynslu og bjóðum fram aðstoð okkar við að gera fyrirtækið þitt sýnilegra. Merkt auglýsingavara þarf alls ekki að vera kostnaðarsöm til að skila árangri, til að mynda getur merktur penni eða bakpoki skilað því hlutverki sem ætlast er til. Auglýsingavörurnar okkar eru bæði vandaðar og fjölbreyttar og því ættu allir að geta fundið vöru sem hentar.