Við erum stolt af því að geta boðið upp á vönduð íslensk og erlend vörumerki

Hjá Valfoss er að finna mikla breidd í vörumerkjum í auglýsinga- og gjafavörum og sérframleiðslu og við leggjum mikla áherslu á að allar okkar vörur standist ýtrustu kröfur er varða gæði og áreiðanleika. Allir okkar birgjar, bæði hér heima og erlendis, standast þær kröfur. Í auglýsingavörum og sérframleiðslunni höfum við yfir að ráða miklum fjölda birgja víða um heim sem spanna helstu vöruflokka á því sviði. Í gjafavörunni státum við okkur af virtum dönskum hönnuðum þar sem vörumerki þeirra tákna gæði, glæsileika og ekki síst notagildi.

Sama gildir um íslensku vörumerkin okkar, en íslensk hönnun er sífellt að ryðja sér til rúms hér heima og víða um heim og þykir afar eftirsóknarvert í dag að eignast íslenska hönnun. Valfoss er félagi í alþjóðlegu samtökunum IPPAG (International Partnership for Premiums And Gifts), en þátttaka í þeim skilar sér meðal annars í betra aðgengi að vörunni, hagkvæmari innkaupum, betri gæðum og fljótari afgreiðslu.