Um Valfoss

Valfoss hefur ávallt lagt áherslu á faglega og virðisaukandi þjónustu
Valfoss var stofnað 1. apríl 2001 af þeim Heiðu Sólrúnu Ármannsdóttur og Halldóri Frank Sigurðs. Fyrstu árin var fyrirtækið til húsa að Kirkjulundi 9 í Garðabæ en flutti í núverandi húsnæði að Skemmuvegi 6 í Kópavogi um miðbik ársins 2007. Núverandi eigandi og framkvæmda- stjóri Valfoss er Eva Rós Jóhannsdóttir. Valfoss hefur það að markmiði að veita faglega og persónulega þjónustu þar sem áhersla er lögð á virðisaukandi þjónustu fyrir viðskiptavini fyrirtækisins.
Þjónusta Valfoss er byggð á áralangri þekkingu starfsmanna fyrirtækisins á íslenska aulýsingavörumarkaðnum ásamt sérþekkingu starfsmanna og fyrirtækja innan IPPAG samtakanna. Sameiginlegur máttur þessara aðila er í raun einsdæmi á íslenska aulýsingavörumarkaðnum og þýðir í raun óþrjótandi tækifæri fyrir viðskiptavini Valfoss.

Valfoss býður upp á danska eðalhönnun frá heimsþekktum fyrirtækjum. Fagurkerar nær og fjær geta glaðst með okkur þar sem nýjasta hönnun hinna þekktu dönsku framleiðenda er komin í hús. Þar má nefna Rosendahl, Erik Bagger, Menu og fleiri. Það sem einkennir hönnun þessa sígildu snillinga er gæði, fágun og notagildi. Valfoss leggur mikla áherslu á að fylgjast með því nýjasta sem er að gerast á markaðnum.
Mikl gróska er í íslensku handverki og hönnun um þessar mundir og við hjá Valfoss erum stolt af því að styðja við þá þróun og fjölga atvinnutækifærum í skapandi greinum. Íslenskir hönnuðir eru þekktir fyrir gæði, kjark og frumlega hönnun og er íslensk hönnun kjörin gjöf til að gleðja þá sem búa nær og fjær. Við aðstoðum þig við val á gjöf sem hentar við hvert tilefni fyrir sig og sjáum innpökkun sé þess óskað.
Viltu ná athygli? Við hjá Valfoss byggjum á margra ára reynslu og bjóðum fram aðstoð okkar við að gera fyrirtækið þitt sýnilegra. Merkt auglýsingavara þarf alls ekki að vera kostnaðarsöm til að skila árangri, til að mynda getur merktur penni eða bakpoki skilað því hlutverki sem ætlast er til. Auglýsingavörurnar okkar eru bæði vandaðar og fjölbreyttar og því ættu allir að geta fundið vöru sem hentar. 
